Hörður Torfa

Heimasíða Harðar Torfasonar

  • 22. Nov - 11:36 Hausttónleikar 2009

    Þá er farið að halla undir haustið og mínir árlegu hausttónleikar í augsýn. Ég er auðvitað löngu farinn að undirbúa þá. Þetta er 33 árið í röð sem ég held þessa tónleika.  Þeir verða haldnir að þessu sinni þriðjudagskvöldið 8 september klukkan 20.00 í Borgarleikhúsinu. Fljótlega byrjar miðasala á midi.is

  • 29. Aug - 07:16 Ýmislegt á prjónunum

    Það hefur lítið farið fyrir mér undanfarnar vikur og mánuði enda hef égað mestu verið að sinna einkamálum sem sátu verulega á hakanumsíðastliðinn vetur, nú svo og að hvíla mig. En ýmislegt er í bígerð svosem undir búningur fyrir hausttónleikana sem verða haldnir í Borgarleikhúsinu þriðjudagskvöldið 8 september klukkan 20.00. Einning er ég að vinna að endurnýjun þessarar heimasíðu og það í fjórða eðafimmta skiptið sem síðan er endurnýjuð. En heimasíðunni hleypti ég af stokkunum veturinn1995/96.

  • 15. Aug - 05:58 Reykjavík 22 júni 2009

    Mig langar til að koma á framfæri leiðréttingum vegna fundar míns viðSteingrím J. Sigfússon síðastliðinn laugardag þar sem ýmsireinstaklingar og fjölmiðlar hafa haldið því fram að Steingrímur hafiverið að “leiðrétta mig” og “kallað mig á teppið”. Slíkt er rangt hannbauð mér einfaldlega að sjá með eigin augum netskeyti sem sýndustaðreyndir í málinu.

  • 04. Dec - 05:35 Baráttusöngur

    sú flóðbylgja af réttlátri reiði 
    sem reið yfir okkur einn dag 
    verður að ná sínum hæstu hæðum 
    sem hugrakkt baráttulag 
    þar sem hver maður segir með söngnum; 
    sigur gegn svikum skal nást! 
    við byrjum að nýju og byggjum upp 
    með bjartsýni virðingu og ást

  • 14. Aug - 12:18 Lhasa

    Í gærkvöldi, 23 mai 2009, var ég staddur á tónleikum með söngvaskáldinu Lhasa. Það var hrífandi og ógleymanleg kvöldstund. Á tónleikunum ræddi ég við margt fólk og það barst í tal að ég hafði gert útvarpsþætti um Lhasa árið 2004, í þáttaröðinni Sáðmenn söngvanna., Ég féllst á að birta hérna á heimasíðunni minni handritið að þeim þáttum.

hordursjalfur's picture